Með því að velja þennan stíl ertu að sækjast eftir garði með stórum dvalarsvæðum og litlu viðhaldi. Óvarinn harðviðurinn og hvítmálaðir skjólveggir tryggja að ekki þarf að sinna viðhaldi nema með margra ára millibili. Dökkar steyptar stéttar í bílaplani og hluta dvalarsvæðis gefa garðinum heildstæða mynd.