Garður í þessum stíl einkennist af beinum og hornréttum línum. Garðveggir eru steyptir og vandað efni er notað í stéttar og pall. Bílaplan einkennist af gráum lit, beinum línum og látlausri en smekklegri lýsingu. Gróður er valinn þannig að mjúk formin myndi andstæður við skarpar línur steypunnar.